Leita í fréttum mbl.is
Embla

"Lýðræðislegar kröfur þjóðarinnar og hvað það nú allt heitir" sagði Birgir Ármannsson

Mikilvægt er að fram fari nýjar kosningar til Stjórnlagaþings. Nú er að taka skrefið til fulls og taka upp rafrænar kosningar.

SjálfstæðisFLokksmenn vilja að sjálfsögðu ekki nýjar kosningar, þeir voru á móti því sl. sumar og eru á móti því nú.  "Lýðræðislegar kröfur þjóðarinnar og hvað það nú allt heitir" segir Birgir Ármannsson en hann er fulltrúi þess flokks sem hefur verið afhjúpaður sem hagsmunaflokkur örfárra fjölskyldna sem hafa komið sér í þá stöðu að finnast í góðu lagi að raka til sín fé úr almannafyrirtækjum s.s. Sjóvá svo dæmi sé nefnt. Komið hafa út bækur sem lýsa þessu s.s. Thorsararnir eftir Guðmund Magnússon og Gunnar Thoroddsen eftir Guðna Th. Guðnason.

Hér má sjá lýsingu á því sem Bjarni Ben, Engeyjarættarlaukurinn sagði fyrir hálfu öðru ári síðan þegar hann þvertók fyrir það að skuldir Sjóvár yrðu skildar eftir hjá íslenskum almenningi.

"Tökum ekki stjórnlagaþingið frá þjóðinni" sagði forsætisráðherra á Alþingi í dag. Hendum okkur í nútímalegar aðferðir og tökum upp rafrænar kosningar.  



mbl.is Valdhafar vilja ekki breyta stjórnarskránni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þora ekki í kosningar

Stjórnarandstöðuformennirnir Sigmundur og Bjarni minnast ekki á kosningar því þeir þora ekki í kosningar. Þeir vita sem er, að möguleiki væri á að "Besti" kæmi og hirti af þeim fylgið. 4Flokkurinn er hræddur og lafir saman á lyginni.

Vel orðað hjá Margréti Tryggvadóttur "Þar til réttlætið nær fram að ganga geta stjórnvöld búið sig undir róstusama tilveru"


mbl.is Vill nýja ríkisstjórn um tiltekin verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfðabreytt matvæli næst?

Gott mál, en hvernig fór með reglugerð um merkingu á erfðabreyttum matvælum?

Samstarfssamningur ríkisstjórnarinnar inniheldur samkomulag um að setja reglugerð um að merkja skuli matvæli sem innihalda erfðabreytt efni svo neytendur geti valið hvort þeir vilja borða erfðabreytt matvæli. Hvað dvelur orminn langa?

Sjá náttúran.is



mbl.is Hámark sett á transfitusýrur í matvælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillt Ísland þarf nýja stjórnarskrá

Ég myndi fagna því ef Íslendingar fengju nýja stjórnarskrá þar sem almennum mannréttindum  og lýðræði væri gert hátt undir höfði.

Nýtt lýðveldi er nauðsynlegt á spillta Íslandi


mbl.is „Nýtt lýðveldi“ í Kenýa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vondur verkalýðsforingi

Hérna talar greinilega hagfræðingur. Og Samfylkingarmaður. Með stóru myndina á tæru.

Ekkert í tali þessa manns bendir til þess að hann þyggi laun sín frá verkafólki.

Hvar eru þeir sem hugsa um hagsmuni launþega? 


mbl.is Mjög vond tíðindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útgerðarmenn fá kvótann gefins af fyrstu vinstri stjórn Íslands

Ætlar ríkisstjórnin ekki að breyta núverandi  fiskveiðistjórnunarkerfi í haust eins og gefin voru hátíðleg fyrirheit um í aðdraganda síðustu kosninga og fest var með skýrum hætti í stjórnarsáttmálann?

Það sem verður að koma út úr endurskoðunarnefndinni (sáttanefndinni) núna, er að kvótinn verði yfirtekinn af íslenska ríkinu með formlegum hætti og leigður til útgerða.

Ef niðurstaðan verður á þann veg að útgerðin fái afhentan kvótann í formi nýtingar-/afnotaréttar, stöndum við uppi með óbreytt kvótakerfi þar sem búið er að festa gjafakvótann endanlega í sessi og útgerðarmenn eiga fiskinn í sjónum.

Þá fer nefndin í sögubækurnar, ekki sem sáttanefndin, heldur sem gjafakvótanefndin. Nefndin sem staðfesti það sem margir hafa kallað gjafakvótann í boði fyrstu hreinu vinstri stjórnar Íslands.

Sjá grein Finnboga Vikar á Svipan.is

 


mbl.is Harma ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, ljótt er það

Ótrúlegt að það sé til fólk sem enn er ekki búið að hafna spillingarflokk nr. 1.

En Hreyfingin bætir örugglega við sig. Þingmenn hennar hafa staðið vaktina á Alþingi og barist fyrir hagsmunum almennings í þeim hremmingum sem engan enda virðast ætla að taka.

Hér fordæma þingmenn Hreyfingarinnar viðbrögð Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitsins og ríkisstjórnarinnar við niðurstöðu hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur í sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lélegir fjölmiðlar skilja lesendur eftir með spurningar í stað þess að veita greinargóðar upplýsingar strax

Gaman væri ef fjölmiðlar spyrðu einfaldrar spurningar og upplýstu lesendur um það hvað mörg eintök búið er að selja?

Við BORGUMBLAÐIÐ

Mogginn skildi eftir 3ja milljarða skuld fyrir okkur almenning að greiða. Rekstur síðustu 6 mánaða skilur eftir hálfan milljarð í skuld. Eigendur blaðsins þurfa ekki að bera skaðann af lélegum rekstri svo þeir geta haldið áfram að gera tilraunir með útgáfu blaðsins og dýrustu prentvél á Norðurlöndum.

Við BORGUMBLAÐIÐ. Einkavæðum gróðann, þjóðnýtum tapið ættu að vera slagorð sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En bankaræningjarnir ganga enn lausir.

Þjófarnir ganga enn lausir. Vitað er hverjir það voru sem rændu og rupluðu úr sjóðum almennings hér á landi og annars staðar, en þeir hafa ekki verið sóttir til saka og ekki hafa þeir skilað neinu af ránsfengnum.

(Úr stefnu Borgarahreyfingarinnar):
Strax verði hafist handa við að meta heildarskuldir þjóðarbúsins og að því loknu gert upp við lánardrottna eftir bestu getu. ICESAVE-reikningar Landsbankans og aðrar skuldir bankanna erlendis verði ekki greiddar fyrr en álit óháðra sérfræðinga liggur fyrir um skyldur Íslands, m.t.t. þess að sennilega hafi verið um svikamyllu að ræða en ekki eðlilega bankastarfsemi. Rannsakað verði hvað varð um allar færslur á reikningum bankanna erlendis sem og lánveitingar þeirra til tengdra aðila, fjármunirnir sóttir og þeim skilað til eigenda. Stjórnendur og eigendur bankanna verði gerðir ábyrgir fyrir því sem upp á vantar.


mbl.is Innbrotsþjófar handteknir í Grafarholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungt fólk byrjar á því að skuldbinda sig til íbúðakaupa og vinna myrkranna á milli

Á meðan börnin eru lítil þurfa þau mest á foreldrum sínum óþreyttum að halda. En á Íslandi eru nærri 90% íbúðarhúsnæðis í séreign. Ungt fólk sem stofnar fjölskyldu byrjar á því að þurfa að skuldbinda sig til íbúðakaupa og vinna ótæpilega. Þannig hefur þetta alltaf verið á Íslandi.

En af hverju er ekki virkur húsaleigumarkaður á Íslandi eins og á hinum Norðurlöndunum?
Séreignastefnan hér á landi var undirritað samkomulag á milli ríkisvaldsins og verkalýðshreyfingarinnar. Ákveðið var að allir eiga að kaupa íbúð. Líka sá hluti launafólks, sem margt ræður ekki við íbúðakaup, þ.e. ef eitthvað kemur uppá: veikindi, flutningur á milli landshluta, aðrar breytingar og á aldrei varasjóði til að grípa í. Og ekki eiga allir foreldra sem geta hlaupið til að lánað veð fyrir því sem útaf stendur.

Margir einstaklingar fara í gjaldþrot, bara vegna þess að þeir réðu ekki við að kaupa íbúð. Af hverju er ekki virkur húsaleigumarkaður á Íslandi eins og á hinum Norðurlöndunum?


mbl.is Kaupsamningum fækkaði milli mánaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð láti gott á vita

Það er nú vonandi að útlendingar segi oftar álit sitt á íslenskum stjórnmálum. Við hér heima erum orðin svo vön nepótismanum og spillingunni í öllum stofnunum þjóðfélagsins að við erum hætt að sjá. Glöggt er gests augað og vinur sá er til vamms segir eða þannig.
mbl.is OECD blandar sér í íslensk stjórnmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fram og aftur blindgötuna

Bara eins og "skjaldborg" Jóhönnu — einstefna í báðar áttir.

Gott innlegg hjá formanni Hagsmunasamtaka heimilanna í Kastljósi. Flott að benda á afskiptaleysi ASÍ og sýna fram á samhengið í þessu máli málanna.

----------

Eðlilegast af öllu er að láta mat fyrir fjölskylduna ganga fyrir. Fyrst nauðsynjar, síðan skuldgreiðslur.  

Ef þú ætlar að hætta að borga af skuldunum:
Ef þú ætlar að hætta að borga af skuldunum, og ert með skuldfærslur eða sjálfvirkar færslur af reikningi þínum, þá þarftu að stofna nýjan reikning og láta launagreiðandann vita af nýjum reikningi til að setja launin (eða bæturnar) inn á.
Ef bankinn hefur leyfi til að taka út af launareikningi þínum þá hefur hann bara leyfi fyrir þann reikning. Bankinn hefur ekki leyfi til að fara inn á nýja reikninginn. Þú átt peningana þína og þú ræður hvað þú gerir við þá.
Ef greiðsluþjónusta er í gangi, sem skuldfærir af launareikningi þínum, þá þarf að:

  • Stofna nýjan reikning eða sparisjóðsbók. Mæli með að hafa engan yfirdráttarmöguleika.
  • Það er alveg sama hvort þetta er í viðskiptabankanum þínum eða einhverjum öðrum banka.
  • Svo er hringt í launagreiðandann og sagt frá því að launin eigi að leggjast inn á þennan nýja reikning.
  • Þetta þarf líklega að gerast í fyrir miðjan mánuðinn svo það sé öruggt að þetta gerist fyrir mánaðamótin.


Þú hættir semsagt að nota gamla reikninginn sem hefur skuldfærsluna á, og bíður róleg(ur) eftir því hvað ríkisstjórnin gerir varðandi "skjaldborg um heimilin í landinu". 

Eðlilegast af öllu er að láta mat fyrir fjölskylduna ganga fyrir. Fyrst nauðsynjar, síðan skuldgreiðslur. 


mbl.is Einstefna í báðar áttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja stefnu þarf í húsnæðismálum!

Nú væri ráð fyrir félagsmálaráðherra að skoða þessi mál í samhengi. Það er ekki trúverðugur ráðherra sem segir eitt í dag og annað á morgun. Auðvitað þarf að afskrifa skuldir almennings sem eru umfram greiðslugetu. En það þarf líka að breyta íbúðakerfinu. Byggja þarf upp leigumarkað sem raunverulegan valkost og henda verðtryggingunni út á hafsauga.

Hagkerfi sem leyfir verðtryggingu lána getur ekki talist frjálst eða á nokkurn hátt eðlilegt.

Verðtryggingin er böl
[af vald.org]
Vaxtaþrælar

Hagkerfi sem leyfir verðtryggingu lána getur ekki talist frjálst eða á nokkurn hátt eðlilegt. Eins og alltaf þegar menn búa til annarlegar lausnir þá láta slæmar afleiðingar ekki á sér standa.

Verðtryggingin átti stóran þátt í að fasteignaverð hækkaði allt of ört árum saman. Verðtryggingin gerði bankakerfinu kleift að spila með gengi íslensku krónunnar fyrr á þessu ári. Þetta glæpsamlega hringl með krónuna gróf undan trausti landsins á erlendum peningamörkuðum og átti sinn þátt í að kerfið loks hrundi.
..........
Verðtryggingin er byggð á röngum forsendum vegna þess að hún kemur í veg fyrir að framboð og eftirspurn lækki eða hækki vexti þegar það á að gerast. Hún felur raunverulegan kostnað og eykur greiðslubyrðina þegar spurt er að leikslokum. Þetta er auglýst sem eitthvað gustukaverk en þjónar aðeins okurlánurum.

 


mbl.is Ráðherra vill afskrifa skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskar fjölskyldur hlekkjaðar til æviloka við verðlitlar eignir

Heimilin og fjölskyldurnar í landinu hafa alltaf tekið íbúðalán í góðri trú og trausti til fjármálastofnana og stjórnvalda. Margar fjölskyldur eiga nú þess vegna á hættu að verða hlekkjaðar til æviloka við verðlitlar eignir sínar með skuldaklafann á bakinu, eða að verða hraktar af heimilum sínum með opna heimild til endurupptöku krafna til æviloka.

Úr ályktun stofnfundar Hagsmunasamtaka heimilanna 15. janúar 2009
mbl.is Einungis 31 kaupsamningi þinglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Sjálfið

Margrét Sigurðardóttir
Margrét Sigurðardóttir

 

 

hvað ég
vildi sagt hafa

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 44194

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband